EIGER
Árið 2020 bjóðum við í fyrsta sinn upp á ævintýraferð á tind Eiger sem gnæfir yfir Sviss. Fjallið er álitið eitt af þremur glæsilegustu fjöllum svæðisins ásamt Grande Jorasses og Matterhorn - sem við bjóðum einnig upp á ferðir á.
Sérferðir fyrir hópa
Eiger
Dagsetning: Sérferð fyrir hópa - lágmark 5 manns
Eiger er staðsett nálægt svissneska alpabænum Grindelwald en þaðan er algengast að hefja ferðir á tind þess. Fjallið er 3.970 metra hátt og mikil áskorun þar sem farið er eftir berskjölduðum hryggjum en er fært vönu fjallafólki í góðu formi.
Með í för verða IFMGA-vottaðir leiðsögumenn sem gæta fyllsta öryggis leiðangursfólks.
Fyrirkomulag
Þar sem um er að ræða sérferð fyrir hópa mun nákvæmt fyrirkomulag velta á hópnum sjálfum. Algengt er að byrja í Grindelwald í Sviss, ganga upp í Mittellegi-skálann í 3.355 metra hæð og gista þar eina nótt áður en toppadagurinn tekur við. Gengið er á toppinn og til baka niður á einum degi og gangan getur tekið allt að 12 klukkustundum.
Hafið samband við okkur í gegnum info@tindartravel.is fyrir frekari upplýsingar.
Til þess að bóka eða fá frekari upplýsingar skal hafa samband á: arnar@tindartravel.is eða vilborg@tindartravel.is
Staðfestingargjald: 55.000 kr.
Ferðin skal vera að fullu greidd 30 dögum fyrir brottför.
Möguleiki að skipta greiðslum á kreditkort.
INNIFALIÐ
- IFMGA-vottuð leiðsögn en að öðru leyti samkomulag eftir þörfum hópa.
EKKI INNIFALIÐ
- Flug til og frá áfangastaðar
- Ferðatryggingar
- Uppihald
Mikilvægt er að þátttakendur kynni
sér ferðaskilmála vel og vandlega.
